SJÖTÍU ÚTKÖLL Á EINUM DEGI Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa margir hverjir fundið fyrir minni þrýstingi á hitaveitukerfi í húsum sínum undanfarnar vikur. Ábendingar til Veitna skipta tugum á hverjum degi og segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi, útköllin fleiri nú en undanfarin ár.„Þetta er frekar algengt á haustin sérstaklega, þegar notkun eykst á heita vatninu. Við erum að fara úr svona 7.000 rúmmetrum á klukkustund í svona rúmlega 16.000 rúmmetra á klukkustund eins og það er núna. Þá erum við að tala um yfir 4.000 lítra á sekúndu sem eru í notkun.“Flest hafa útköllin orðið sjötíu á einum degi. Silja segir vandamálið hverfatengt – mest í Vesturbænum, Miðbænum, Lauganeshverfinu og Rauðarárholti, og einnig í Kópavogi og Hafnarfirði.„Þetta eru þessi náttúrulegu óhreinindi sem fylgja