Engar tillögur að lausnum á stærstu deilumálum í heiminum komu fram á sögulegum fundi leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína í dag. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, segir fundinn aðallega hafa verið tilefni fyrir þá þrjá að láta mynda sig saman.„Það svo sem gerðist ekki margt sögulegt á þessum fundi, það sem var kannski merkilegt eða sögulegt var það að þessir þrír leiðtogar komu saman á einum stað í fyrsta sinn,“ segir Guðmundur.Svona fundir geti rutt veginn og leiðtogarnir þrír hafi greinilega áhyggjur af útbreiðslu kjarnorkuvopna. „Það væri auðvitað mjög æskilegt ef viðræður um að takmarka þau komi út úr þessu. En á þessum fundi gerðist það í sjálfu sér ekki. En það var kannski ekki við því að búast.“ TRUMP ÞURFI AÐ LÚTA LÝÐRÆÐI Sterkt samband Xi Jinping, forseta Kín