Vilji íbúa til vindorkuvers á Sauðahálsi á Langanesi verður athugaður í könnun sem verður lögð fyrir íbúa sveitarfélagsins á næstu vikum. Slíkt var íbúum Norðurþings ekki boðið upp á eins og fram hefur komið í fréttum RÚV um vindorkuver á Hnotasteini.Frestur til að skila inn umsögnum í Skipulagsgátt við fyrirhugað vindorkuver Qair við Hnotastein rann út í gær. Alls barst 51 umsögn og hrönnuðust þær inn síðustu daga umsagnarferlisins. Þá hafa 1500 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is til að mótmæla fyrirhuguðu vindorkuveri.Friðjón Þórðarson er forstjóri Qair á Íslandi:„Fyrir tveimur dögum voru komnar átta umsagnir. Núna hafa þær hrannast inn svona á lokametrunum. Við eigum eftir að skoða þetta almennilega. Við hlustum alltaf á gagnrýni og fögnum allri gagnrýninni orðræðu um svona verk