Icelandair hefur samþykkt ákvörðun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) að fresta verkfalli sem átti að hefjast á miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Verkfallinu hefur verið frestað um þrjár vikur og hefst á miðnætti 10. desember ef samningar nást ekki. Flugmenn og Icelandair sammæltust um að grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum eftir fund hjá ríkissáttasemjara í dag.