Papco hf. lagði Samhenta Kassagerð hf. í Hæstarétti í gær. Síðarnefnda fyrirtækið hafði farið í mál til að staðfesta lögbann við því að Papco héldi áfram framleiðslu, innflutningi og sölu á plastpokum sem fyrirtækið hafði merkt með lýsingarorðinu „STERKIR“.Samhentir höfðu um árabil framleitt og selt plastpoka með þessu orði. Papco hóf síðar að framleiða keimlíka poka og Samhentum þótti þeir vera eftirlíking af sínum.Að kröfu Samhentra setti sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lögbann við framleiðslu, innflutningi, dreifingu, sölu og annarri ráðstöfun Papco á pokunum. Vísað var til þess að merkingarnar á pokunum væru líkar og líkur á ruglingi. Hvernig litu pokarnir út? Pokarnir sem Samhentum Kassagerð þótti Papco herma eftir voru annars vegar svartir plastpokar sem stóð á „STERKIR“ með hvítu