Arkitekt stingur upp á leið til að bjarga stúkunni í Laugardal

Áform hafa verið uppi um að rífa stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug þar sem hún telst hættuleg samkvæmt áhættumati verkfræðistofunnar Verkís í sumar.Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s.ap arkitektum, leggur til að hannað verði og útfært sjálfstætt burðarkerfi fyrir skyggni stúkunnar. Stúkan hefur verið eitt helsta kennileiti Laugardals síðan 1968.Arnhildur áréttar að stúkan sé merkilegt mannvirki, bæði frá sjónarhóli arkitektúrs og verkfræði, sem búið sé að dæma ónýtt.Sú niðurstaða hafi kveikt með henni mótþróastreituröskun um hvort raunverulega þurfi að ganga svo langt. Hún hafi mikið reynt að finna áframhaldandi líf fyrir byggingar.„Það er eiginlega ekki hægt að við séum alltaf að rífa eins og við gerum. Það er bara svo mikils virði bæði menningarlega og sögulega og svo
Arkitekt stingur upp á leið til að bjarga stúkunni í Laugardal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar