Þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði á bensíni frá miðjum september hefur innlent bensínverð, án opinberra gjalda, ekki enn fylgt á eftir, samkvæmt greiningu Alþýðusambands Íslands (ASÍ).Samkvæmt henni hefur meðaltal lægsta bensínverðs á Íslandi hækkað um 35% á þessu ári. Án opinberra gjalda hefur bensínverð hækkað um 40%. Í New York-höfn, sem ASÍ notar til samanburðar, hefur verð hækkað um 20% í íslenskum krónum. Virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður tímabundið í sumar.„Lækkun verðs á dælu í maí fór saman við áframhaldandi hækkun verðs án opinberra gjalda. Þegar skattalækkunin gekk til baka í september hækkaði verð á dælu meira en verð án gjalda,“ segir í greiningu ASÍ.Bensínverð, án opinberra gjalda, hækkaði hratt í september á Íslandi. Sú hækkun hélt áfram í október þrátt fyrir