Diljá Mist finnur stuðning þingsins í erfiðleikum

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks hrósaði samstarfsfólki sínu á Alþingi á þingfundi í dag, undir liðnum störf þingsins. Diljá sagði þingmenn glíma við áskoranir og áföll, missi og sorg.Upplausn og læti blöstu við almenningi frá þinginu þar sem oft væri sverft til stáls. Fæstir sæju hins vegar hlýhuginn milli góðra kollega þvert á flokka.„Faðmlögin á göngunum, hvatninguna, uppbyggilegu samtölin, kærleikann sem er mjög áþreifanlegur þegar fólk gengur hér í gegnum erfiðleika. Traust til Alþingis og stjórnmálamanna mælist ítrekað allt of lágt,“ sagði Diljá.„Ég er viss um ef landsmenn sæju þessa hlið á okkur þá hefði það góð áhrif. Fólk tengdi betur við okkur. Hér vinnur gott fólk með mismunandi hugsjónir að leiðarljósi en ásetningur allra er góður. Og þegar við eins og allt a
Diljá Mist finnur stuðning þingsins í erfiðleikum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar