Kennari sagði börnum að tala ekki um atlot starfsmanna

Börn í bekk í Hagaskóla voru beðin um að tala ekki um ástaratlot tveggja starfsmanna sem sáust í gegnum sandblásið gler á skrifstofu á skólatíma á þriðjudaginn. Þetta hefur fréttastofa eftir foreldrum barnanna. Skólastjórnendur segjast líta málið alvarlegum augum.Börnin urðu vitni að atvikinu og töldu meira en kossaflens hafa átt sér stað bak við glerið.„Ég veit ekki nákvæmlega hvaða orðaskipti fóru fram á milli starfsmanna og barna þegar atvikið kom upp. Málið er í vinnslu innan skólans og í samstarfi við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs og ég mun ekki tjá mig frekar um það við fjölmiðla,“ segir Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri Hagaskóla í svari við fyrirspurn fréttastofu.Hún svarar því ekki hvort starfsmennirnir séu enn við störf á meðan málið er til skoðunar. Þá svarar
Kennari sagði börnum að tala ekki um atlot starfsmanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar