Ein þekktasta tónlistarkona heims, Bille Eilish, verður aðalnúmerið á dönsku tónlistarhátíðinni Hróarskeldu á næsta ári. „Þetta er algerlega risastór bókun,“ segir Marie Hobitz, útvarpskona og tónlistarsérfræðingur hjá danska ríkisútvarpinu.Hobitz segir að þarna hafi Hróarskelda náð í listamann úr efstu hillu í popptónlistinni og bætir við: „Þetta verður ekki stærra.“ EIN SKÆRASTA POPPSTJARNA HEIMS Eilish er aðeins 24 ára en er fyrir löngu orðin heimsþekkt. Þegar hún var 13 vakti hún athygli með laginu Ocean Eyes sem hún samdi ásamt bróður sínum en í mars 2019 kom fyrsta breiðskífa hennar út og smellurinn Bad Guy kom henni rækilega á kortið.Hróarskelda verður haldin 26. júní til 3. júlí á næsta ári. Ein af aðalstjörnunum í fyrra olli nokkrum vonbrigðum. Það var breska tónlistarkonan Lil