Undirrita samning um gagnaver á Bakka

Í dag var undirritaður samningur milli Eyrie DC og Norðurþings um 8,2 hektara lóð við Bakka til næstu fimmtíu ára, með möguleika á framlengingu. Á lóðinni á að rísa gagnaver, sem heimildir RÚV herma að sé á vegum tæknirisans Microsoft.„Við höfum unnið að undirbúningi gagnaversins á Bakka í meira en tvö ár og höfum verið í nánu samstarfi við Norðurþing undanfarna mánuði. Undirritunin í dag er því stór áfangi fyrir okkur,“ segir Þóra Helgadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eyrie DC.Fréttastofa RÚV sagði frá því fyrr í mánuðnum að skipulagsráð Norðurþings hefði úthlutað Eyrie DC lóð undir gagnaver og framundan væri vinna við að grafa tilraunarholur.Í fréttatilkyningu frá Norðurþingi og Eyrie DC segir að samhliða lóðarleigusamningnum hafi verið skrifað undir samstarf við nærsamfélag
Undirrita samning um gagnaver á Bakka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar