Tvær framleiðslulotur af First Price-hveiti sem danski hveitiframleiðandinn Valsemøllen hefur innkallað vegna mögulegrar mengunar voru einnig seldar í Krónunni hér á landi. Ekki var hægt að útiloka heilsufarsáhættu af hveitinu Framkvæmdastjóri Krónunnar segir að von sé á fleiri innkölunum á hveiti hjá fleiri söluaðilum hér á landi. Alls voru tólf hundruð pokar af mengaða hveitinu til sölu í verslunum Krónunnar.