Vladimír Pútín heitir hörðum viðbrögðum við árásum Úkraínumanna á brúna yfir Kerch-sund, sem tengir hernuminn Krímskaga við meginland Rússlands. Hann segir að viðbrögðin verði sársaukafull fyrir Úkraínumenn og að ekki komi lengur til greina að semja um einhver tímabundin vopnahlé, eins og gagnvart árásum á skip á Svartahafi eða á orkuinnviði.