Danska þingið greiddi í dag atkvæði um að staðfesta öryggissamning sem Danmörk undirritaði við Bandaríkin og Grænland í september. Samningnum er ætlað að draga úr spennu vegna tíðra yfirlýsinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að innlima Grænland í Bandaríkin. Folketingið, sem er skipað 179 þingmönnum, samþykkti samninginn að lokinni annarri umræðu og greiddu allir 109 þingmenn sem voru viðstaddir atkvæði með...