„Hann býður mér það að verða sykurpabbinn minn; að ég fái borgað fyrir að vera með honum, “ segir Arna Sif Haukstein Knútsdóttir sem er 22 ára gömul kona. Hún talar þarna um fyrrverandi dansþjálfarann sinn sem hún var í danstímum hjá fram til ársins 2021 þegar hún var sautján ára gömul. Arna kærði manninn til lögreglu en kærunni var vísað frá árið 2023. Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um manninn sem Arna talar um. Deilan snýst um hvort hann geti verið meðlimur og þátttakandi í Dansfélagi Reykjavíkur eða ekki. Þetta er maður á sextugsaldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum. Hann hefur verið dansari í áratugi og tekið þátt í keppnum og orðið Íslandsmeistari auk þess sem hann hefur þjálfað bö