„Stærsti viðburður sem hefur verið frá upphafi“ í afþreyingarbransanum

„Þetta er eiginlega bara stærsti viðburður sem hefur verið frá upphafi tölvuleikja, mætti segja, og í rauninni í afþreyingarbransanum,“ segir Bjarki Þór Jónsson tölvuleikjafræðingur um sjöttu útgáfu GTA sem kom út á miðnætti. „Þetta er bara risavaxið.“Eftirvæntingin eftir leiknum hefur verið mikil en langt er síðan fimmta útgáfa kom út, eða 13 ár.Bjarki segir að metupphæðir hafi farið í framleiðslu leiksins. „Ofan á það sjáum við núna fyrstu dóma sem eru að koma inn sem eru að segja að leikurinn standist allar væntingar.“Búist er við því að margir, um heim allan, hafi boðað forföll eða tekið sér frí til að spila leikinn í dag. Bjarki er ekki einn þeirra. „En ég er búinn að gera allt tilbúið heima. Ég er búinn að sækja leikinn í tölvuna þannig að ég bíð eftir því að fá frítíma, setjast niðu
„Stærsti viðburður sem hefur verið frá upphafi“ í afþreyingarbransanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar