Birgðageymar undir heita vatnið á Akureyri eru komnir upp fyrir öryggismörk. Notkun á heitu vatni var um tíma meiri en framleiðsla og íbúar beðnir að spara það.„Staða geymanna er bara góð og yfir 90%. Við erum komin með fulla stjórn á þessu og getum bætt í ef meira þarf,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku.„Það tókst að gera við. Þetta er að vísu bráðabirgðaviðgerð en við komum holunni í virkni seinni partinn í gær og gátum þá slökkt á olíukatlinum og kerfið var í rauninni bara á fullri siglingu í nótt að rétta úr kútnum og við erum komin á góðan stað núna.“Bilunin varð í dælu á Laugalandi.„Dælan brann og húsið allt í vor og það hefur tekið tíma að endurbyggja það og allan búnaðinn sem brann þarna líka.“ „Í GÓÐUM MÁLUM EINS OG ER“ Íbúar og stórnotendur voru beðnir um að fara sp