Veikari útflutningshorfur og skortur á augljósum vaxtarbroddum gætu þýtt að hagkerfið muni festast „í einhverju miðjumoði“ þótt fjárhagsleg staða þjóðarbúsins sé sterk og horfur á lækkandi vöxtum hafi batnað. Aðalhagfræðingur Kviku banka telur að vaxtamunur Íslands við útlönd geti minnkað enn frekar og hefur litlar áhyggjur af fyrirhuguðum halla ríkissjóðs, ólíkt vaxandi skuldavanda margra stærstu hagkerfa heims.