Flestir stefna á toppinn, en hjá Prís er því öfugt farið. Frá því verslunin opnaði fyrir tveimur árum hefur hún verið á botninum á verðlagslínuriti ASÍ, ódýrust allra, mánuð eftir mánuð. Í tilefni afmælisins lögðu Birta Ósk Friðbertsdóttir markaðsstjóri Prís og Björk Guðmundsdóttir leikkona land undir fót og heimsóttu botna landsins.