Boðar meiri niðurskurð í fjárlagafrumvarpinu

Fjármálaráðherra segir að fjárlagafrumvarpinu verði breytt svo að markmið um hallalaus fjárlög náist. Breytingarnar verða allar á útgjaldahlið frumvarpsins.Í Peningamálum Seðlabankans í gær kom fram að breyttar forsendur á horfum efnahagsmála, til að mynda minni hagvöxtur en fyrri spá gerði ráð fyrir, þýddu 17 milljarða króna halla á ríkissjóði á næsta ári. Það er, eins og fjárlagafrumvarpið leit út þegar það var lagt fram. Það er nú í meðförum þingsins og kemur senn til annarrar umræðu en það þarf að samþykkja fyrir áramót.Á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun útskýrði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að spá bankans um 17 milljarða króna halla væri einfaldlega byggð á líkani hans og jafnvel þótt það yrði niðurstaðan þá væri aðhaldsstig ríkisfjármálanna umtalsvert.Daði Már Kristófersson
Boðar meiri niðurskurð í fjárlagafrumvarpinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar