„Hefði ég farið aðra leið að þessu væri ég ráðherra? Já, ég hefði kannski farið aðra leið. Skil ég þá leið sem ráðherra er að fara? Ég hef skilning á því, en ég hefði farið aðra leið sjálfur, en það er ástæða fyrir því að þessi leið er farin,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, í samtali við Morgunblaðið.