Mjanmar er sekt um þjóðarmorð gegn Róhingjum. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur komist að þessari niðurstöðu. Mjanmar er fyrsta ríkið sem er dæmt sekt um þjóðarmorð.„Dómstóllinn er þeirrar skoðunar að eina skynsamlega ályktunin sem geti skýrt aðgerðir Mjanmar sé að fyrir hendi hafi verið ásetningur um að eyða verulegum hluta Róhingja í norðurhluta Rakhine,“ sagði Yuji Iwasawa, dómari við dómstólinn þegar úrskurðurinn var kynntur í dag.Níu dómarar af fimmtán voru á þeirri skoðun að Mjanmar væri sekt um þjóðarmorð. Það tók nokkrar klukkustundir að lesa upp dóminn í heild sinni.Dómstóllinn segir stjórnvöldum í Mjanmar bera skylda til að greiða bætur til Róhingja.Gambía höfðaði málið í nóvember 2019 fyrir hönd Samtaka íslamskra ríkja (OIC). Úrskurðurinn varðar sekt Mjanmar sem ríkis en ekki eins