Óeðlilegt að einn eða tveir flokkar geti selt mikilvæga innviði

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir óeðlilegt að flokkar í meirihluta hafi heimild til að selja mikilvæga innviði. Fulltrúar Samfylkingar lögðu í vikunni fram tillögu um að það þurfi aukinn meirihluta þegar á að selja mikilvæg innviðafyrirtæki. Þetta er í kjölfar frétta um væntanlega sölu á Ljósleiðaranum.Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 og ræddi tillöguna.„Við höfum séð að hingað til, þegar flokkar komast til valda, þá ákveði þeir að selja innviði eða fyrirtæki í eigu almennings. Það tekur bara stuttan tíma. Einn flokkur eða tveir flokkar bara ákveða að selja og okkur finnst það óeðlilegt. Þetta eru óafturkræfar ákvarðanir,“ segir Pétur. OFT RÁÐIST Á SVONA INNVIÐI „Þannig okkur finnst eðlilegt að það sé aukinn meirihluti sem þ
Óeðlilegt að einn eða tveir flokkar geti selt mikilvæga innviði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar