Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu gera alvarlegar athugasemdir við minnisblað um áhrif hækkunar bankaskatts, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið skilaði til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á dögunum. Samtökin segja ráðuneytið ekki svara spurningunum um forsendur og heildaráhrif skattahækkunarinnar, sem hljóti að þurfa að vera mat á áhrifum á ríkissjóð, atvinnulífið, almenning og þjóðarbúið í heild.