Eigandi íbúðarhúss í Hveragerði, sem raunar er að reyna að selja húsið, lýsir yfir í bréfi til bæjaryfirvalda mikilli óánægju með skort á aðgerðum vegna umgengni á lóð næsta húss við hliðina. Segir eigandinn að nágranni hans hafi safnað á sína lóð bílhræjum og alls kyns drasli til viðbótar.