Lög sem áttu að takmarka losun á metangasi í Evrópusambandinu taka ekki gildi á næsta ári eins og stefnt var að. Gildistöku þeirra hefur verið frestað um tvö ár, til 2029.Lögin hefðu gert fyrirtækjum sem flytja inn kolvatnsefni skylt að mæla og tilkynna um metangas sem hlýst af viðskiptum þeirra. Þetta mætti mikilli mótstöðu stórra iðnfyrirtækja og bandarískra stjórnvalda. Fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þings sambandsins og aðildarríkja sátu á fundi fram á kvöld í gær. Niðurstaða hans var að fresta gildistökunni um tvö ár.Darragh O'Brien, umhverfisráðherra Írlands sem fer með forsetahlutverk í Evrópuráðinu þetta misserið, kynnti niðurstöðuna. Hann sagði að náðst hefði raunsæ lausn sem næði bæði þeim markmiðum að bregðast við hækkandi orkuverði og varðveita forystu Evrópusa