Skilaboðin voru skýr þegar Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti endurmat á herafla og herstyrk Bandaríkjanna í Evrópu fyrir hálfu ári.Hann sagði NATO hafa villst af leið og nú ætti að tryggja að NATO yrði það sem til stóð. Varnarbandalag jafningja þar sem Evrópa bæri sjálf meginábyrgð á eigin vörnum. NATO 3.0.Á Hegseth var að skilja að bandarískum hermönnum í Evrópu yrði fækkað stórlega, um allt að 25 þúsund, og jafnframt að ef til átaka kæmi í Evrópu yrðu forsendur þess að Bandaríkin legðu til hefðbundin hertól endurmetnar. Endurmatið ætti að liggja fyrir í byrjun desember.Á þriðjudag kom svo að því að maðurinn sem leitt hefur þessa endurskoðun ræddi við kollega sína í Evrópu. Elbridge Colby hefur um árabil verið einn helsti talsmaður þess að Bandaríkin dragi úr herna