Hæg norðaustlæg átt

Útlit er fyrir rólegheitaveður í dag. Þó gætu sums staðar orðið él eða skúrir. Á morgun blæs aðeins meira af suðaustri. Hiti verður víða við frostmark í dag en mildara syðst og hiti þokast aðeins upp á við á morgun.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustan og austan 3-10 m/s og él eða skúrir á víð og dreif. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum á Norðurlandi, en hiti að 5 stigum við suðurströndina.Suðaustan 5-13 suðvestan- og vestanlands á morgun, annars hægari. Dálítil él eða skúrir, en að mestu þurrt norðanlands. Heldur hlýnandi.
Hæg norðaustlæg átt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar