Bandaríkin mótfallin alþjóðlegri reglugerð um gervigreind

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin setji sig alfarið á móti alþjóðlegri reglugerð um gervigreind, í hvaða mynd sem er. Forsetinn greindi frá þessu á ráðstefnu um efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja í Shenzen í Kína í dag.Forsetinn sagði að Bandaríkin væru stolt af því að vera leiðandi í heiminum á sviði ofurgreindar en það er orðið sem hann notar yfir gervigreind. Hann sagði tæknina vera mestu tæknibyltingu síðan í iðnbyltingunni og að hún væri að skapa velmegun og vöxt fyrir fólk víða um heim.Trump sagði að Bandaríkjastjórn vilji ekki gera neitt sem hamli þeim miklu möguleikum sem tæknin býr yfir. Þetta sé ofurgreind og það þurfi að fylgjast með henni og fara varlega. Tæknin búi yfir kostum og göllum.„Hún er að mestu góð en það eru nokkrir slæmir eiginleikar til staða
Bandaríkin mótfallin alþjóðlegri reglugerð um gervigreind

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar