Hundrað milljónir krabba lagðar af stað í háskaför

Yfir hundrað milljónir rauðra krabba svara nú kalli náttúrunnar og hafa hafið árlega göngu sína frá skóginum og niður að sjó á Jólaeyju í Indlandshafi. Krabbarnir leggja af stað þegar regntímabilið hefst og halda til sjávar til að fjölga sér. Ferðalagið er þó ekki hættulaust.Jólaeyja tilheyrir Ástralíu og þjóðgarðurinn þar er hluti af þjóðgörðum Ástralíu. Þjóðgarðar Ástralíu segja að það sé tunglhringurinn sem hvetur krabbana af stað en þeir reyna að ná niður að sjó í tæka tíð til að hrygna þegar sjórinn er að falla eftir flóð á þriðja kvartíl tunglsins.Krabbarnir eru því ekkert að slóra þegar þeir loksins fara af stað og marsera eins og rauðir tindátar í gegnum skóglendi, yfir vegi og jafnvel brýr áður en þeir ná loksins til hafs.Svokallaðir gulir brjálaðir maurar eru helsta ógn krabbanna
Hundrað milljónir krabba lagðar af stað í háskaför

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar