Neyðarástand vegna þurrka á hitabeltiseyjum

Stjórnvöld á Fiji-eyjum hafa lýst yfir neyðarástandi vegna þurrka. Þurrkarnir hafa magnast upp vegna El Nino-veðurfyrirbærisins sem minnkar hitabeltisúrkomu sem í venjulegu árferði heldur eyjunum gróskumiklum og grænum.Ríkisstjórnin á Fiji-eyjum segir að viðvarandi þurrkar af völdum El Nino hafi náð hættumörkum og því hafi stjórnvöld neyðst til að lýsa yfir neyðarástandi um allar eyjarnar. Forsætisráðherrann Sitiveni Rabuka sagði í gær að íbúar hefðu áhyggjur af vatni og áhrifum langvarandi þurrka á daglegt líf og bændur hefðu áhyggjur af uppskeru og búfé.Rabuka sagði áhyggjur fólksins vera á rökum reistar. Með því að lýsa yfir neyðarástandi geta stjórnvöld skammtað vatn, farið fram á rýmingar og úthlutað fé til neyðaraðstoðar. Vatnsbirgðir víða um eyjarnar eru af skornum skammti og vörubí
Neyðarástand vegna þurrka á hitabeltiseyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar