Önnur árás á Krím-brúna

Krím-brúin er mikilvæg samgönguæð milli Krímskaga og Rússlands.EPA / StringerÚkraínuher gerði aðra árás á Krím-brúna í kvöld. Sergei Aksyonov, rússneskur héraðsstjóri Krímskaga sem skipaður er af stjórnvöldum í Moskvu, greindi frá árásinni í færslu á Telegram í kvöld.Aksyonov segir að umferð um brúna hafi verið stöðvuð tímabundið en viðbragðsaðilar séu á vettvangi og unnið sé að því að meta tjónið.Úkraínuher gerði árás á brúna fyrir tveimur dögum sem olli nokkru tjóni á brúnni. Brúin er eina vegatengingin milli Rússlands og Krímskaga yfir Kerch-sund og mikilvæg samgönguæð fyrir Rússa. Vladimír Pútín Rússlandsforseti setti framkvæmd brúarinnar á hæsta forgang þegar Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014.
Önnur árás á Krím-brúna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar