Danskur lögreglubíll. Mynd úr safni.politiet.dkKarlmaður á sjötugsaldri, kona á fimmtugsaldri og tíu ára stúlka fundust látin nærri bænum Give á Jótlandi í Danmörku í gær.Danska ríkisútvarpið segir að lögreglan segir að hin látnu hafi fundist á heimili sínu í gærmorgun. Lík þeirra verða krufin í dag fimmtudag til að reyna að varpa ljósi á dánarorsök þeirra en ekkert hefur verið gefið upp um mögulega dánarorsök þeirra.Lögregla handtók fjóra einstaklinga í dag og færði til yfirheyrslu en þeim hefur nú verið sleppt þar sem ekki er talið að fólkið tengist málinu.