Náttúruhljóðfæri Páls Guðmundssonar á Húsafelli voru í öndvegi á tónleikum hans „Landnám hugans“ í Landakotskirkju í kvöld, sem tileinkaðir voru heilagri Sesselju, verndara tónlistarinnar, og minningu rithöfundarins Thors Vilhjálmssonar.Páll er löngu orðinn landskunnur fyrir myndlist sína og hljóðfærasmíði og hefur samið mörg verk við ljóð eftir sjálfan sig og aðra.Steinharpa hans varð heimsfræg í verkinu Hrafnagaldri Óðins, í flutningi Sigur Rósar, Steindórs Andersen og Hilmars Arnar Hilmarssonar.En Páll lætur ekki duga að smíða hljóðfæri úr Húsafellsgrjótinu. Hann hefur einnig smíðað panflautu úr rabarbarastönglum, af 100 ára gömlum rabarbara á Húsafelli.