Útvistun flóttafólks til þriðja ríkis: Góð lausn eða ólögleg, óframkvæmileg og kostnaðarsöm?

Fimm Evrópusambandsríki hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Rúanda um að taka við fólki sem leitað hefur hælis í ríkjunum fimm og verið endanlega synjað um það. Þetta eru Þýskaland, Austurríki, Holland, Grikkland og Danmörk, sem hefur beitt sér fyrir þessu um árabil en orðið lítið ágengt, þar til nú. Fjallað var um þetta í Speglinum á þriðjudag og rætt við Önnu Lúðvíksdóttur framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Hlusta má á þá umfjöllun með því að smella á þennan hlekk, eða á lengri útgáfu með óstyttu viðtalinu við Önnu í spilaranum hér að neðan.Samkomulag fimm Evrópuríkja um nauðungarflutninga óvelkomins flóttafólks til Rúanda hefur verið fagnað sem pólitískum sigri Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. 47 alþjóðasamtök fordæma áformin og vara við mannréttindabro
Útvistun flóttafólks til þriðja ríkis: Góð lausn eða ólögleg, óframkvæmileg og kostnaðarsöm?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar