Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sakfelldi í dag rúmlega tvítugan mann fyrir líkamsárás. Hann réðst á mann í júlí 2024, sló hann með hnefahöggi í bakið og stakk hann í hálsinn með blýanti.Maðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut punktsár á hálsi, mar á mjóbaki og tognaði á brjósthrygg. Sá starfaði í úrræði þar sem hann veitti árásarmanninum þjónustu. Árásin var gerð við heimili starfsmannsins.Árásarmaðurinn játaði sök. Því þurfti ekki að taka afstöðu til sektar heldur aðeins til refsingar og bótagreiðslu.Geðlæknir sagði áhöld um hvort maðurinn hefði verið sakhæfur þegar hann réðst á brotaþola. Geðlæknirinn sagði engan vafa leika á því að refsing gæti ekki borið árangur. Árásarmaðurinn býr í úrræði og nýtur þar þjónustu. Geðlæknirinn sagði mikilvægt að það breyttist ekki.Dómari ákvað því að f