„Ég held að Seðlabankinn sé að gera hér mjög alvarleg mistök í hagstjórninni og auka verulega hér líkur á harðari lendingu heldur en þyrfti,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka Iðnaðarins, sem var gestur í Kastljósi í kvöld. Hann telur að tvær síðustu ákvarðanir Seðlabankans hafi verið mistök.Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir myndu haldast óbreyttir í 8,00 prósentum. Peningastefnunefnd Seðlabankans sagði að verðbólga væri enn of mikil og verðbólguvæntingar yfir markmiði.„Það er mjög augljóslega að teiknast upp mjög kaldur vetur,“ sagði Þorsteinn. „Sérstaklega þegar það kemur að íbúðarmarkaði.“Formaður Samtaka Iðnaðarins telur að tvær síðustu stýrivaxtaákvarðanir hafi verið mistök og að þær auki líkurnar á of harðri lendingu fyrir efnahaginn. Sérfræðingur Acro verðbr