Þegar piparkökur bakast verður til þorp

Afar huggulegt þorp, sem líklega er það stærsta sinnar tegundar, var opnað í Björgvin í Noregi síðastliðna helgi.Allar byggingar í þorpinu eru úr piparkökum. Þetta er í 35. sinn sem svona þorp er opnað í borginni og verður það opið gestum til 10. janúar.„Það er huggulegt að svo margir skuli taka upp kökukeflin og baka og hugmyndaflugið er ótrúlegt,“ segir Steinar Kristoffersen, framkvæmdastjóri miðbæjar Björgvinjar.Í þorpinu er allt til alls, og miklu meira en átta eggjarauður, kíló margarín og lítil teskeið pipar. Það er fjöldi fallegra húsa og lítill piparköku-pizzustaður. Hver sem er mátti leggja til hús eða önnur mannvirki í þorpið og það stóð ekki á innsendingum þetta árið.
Þegar piparkökur bakast verður til þorp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar