Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir að leiðtogar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína vilji allir móta alþjóðakerfið hver eftir sínu höfði en hafi mismunandi markmið. > „Trump vill sýna að hann geti unnið úr lausn alþjóðlegra deilumála og komið heim með einhverja viðskiptasamninga. Pútín er mikið að sýna að Rússland sé ekki eins einangrað og Vesturlönd hafa haldið fram, á meðan Xi vill sýna að Kína sé stórveldi og tæknirisi.“ Hún telur að staðsetning fundarins, Shenzhen í Kína, sé engin tilviljun, en Shenzhen er ein helsta tækniborg Kína.Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína, halda fyrsta leiðtogafund sinn á lokadegi ráðstefnu um efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja í Shenzen á morgun. Leiðtogar þessara þr