Óttast að íslensk miðaldafræði og fleiri námsleiðir leggist af

Roberto Pagani, ítalskur fræðimaður við HÍ, segir hættu á að ákveðnar námsleiðir leggist af, verði skólagjöld fyrir nema frá löndum utan EES að veruleika; til að mynda íslensk miðaldafræði og íslenska sem annað mál. Útlendingar, flest frá löndum utan EES, séu þar í miklum meirihluta.Íslenska sem annað mál sé til að mynda góð leið til að ná því getustigi í íslensku sem til að mynda er krafist á Landspítalanum, segir hann.Aðeins þrír Íslendingar lærðu íslensk handritafræði í fyrra, á móti ríflega tuttugu útlendingum.Pagani segir Ísland eiga talsmenn um allan heim, sem hafi stundað miðaldafræði hér, og þýði íslenskar bókmenntir á erlend tungumál.„Þetta verður náttúrlega rándýrt nám og það er útilokað að jafn margir myndu koma hingað,“ segir Pagani.
Óttast að íslensk miðaldafræði og fleiri námsleiðir leggist af

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar