Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, skaut Voyager 1 á loft árið 1977. Á næsta ári eru því fimmtíu ár síðan leiðangur þessa fjarlægasta sendiherra jarðar í geimnum hófst. Það að Voyager sé kominn ljósdag í burtu frá jörðu þýðir að það tekur geimvísindamenn sólarhring að senda farinu skilaboð, þótt þau fari á hraða ljóssins. Það gengur fyrir plútóni og nýtist enn mjög vel við vísindarannsóknir. Árið 1979 og '80 sendi farið myndir af Júpíter, Satúrnusi og fleiri reikistjörnum á leiðinni út úr sólkerfinu. Það safnar nú gögnum um geimryk og segulsvið sólkerfis okkar.Geimfarið Voyager fyrsti, fjarlægasti manngerði hluturinn, er komið einn ljósdag frá jörðu, eða tæplega 30 milljarða kílómetra. Áfanganum var víða fagnað í dag, meira að segja á Húsavík. ÁFANGANUM FAGNAÐ Á HÚSAVÍK Leiðangur Voya