Ísraelsher gerði stórskotaliðsárás á bækistöðvar Hamas

Ísraelsher gerði í dag stórskotaliðsárás á innviði innan landsvæðis undir stjórn Hamas, nærri Nuseirat-flóttamannabúðunum miðsvæðis á Gaza. Fréttaritari AFP sá ísraelska skriðdreka raða sér upp austan við búðirnar og segir að skothríð og sprengjugnýr hafi kveðið við síðan um hádegisbil.Í yfirlýsingu Ísraelshers segir að nákvæmnisárás hafi verið gerð vestan Gulu línunnar svonefndu til að stöðva ógn sem blasti við hermönnum þar. Hún hafi verið gerð vegna vopnahlésbrota Hamas. Herinn og ísraelskar öryggissveitir tóku þátt í aðgerðunum að því er segir í yfirlýsingunni.Leiðtogar Hamas segja aðgerðina óskammfeilið brot á ákvæðum vopnahléssamkomulagsins sem gert var í október á síðasta ári.Hún sé augljóslega til marks um að Ísraelar láti skuldbindingar sínar lönd og leið. Gula línan aðskilur svæð
Ísraelsher gerði stórskotaliðsárás á bækistöðvar Hamas

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar