Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, telur lánið bestu leiðina til að styrkja stöðu Úkraínumanna við samningaborðið. Hún áréttar að þeim bæri ekki að endurgreiða lánið fyrr en Rússar hefðu greitt bætur fyrir það tjón sem stríðsreksturinn hefur valdið í Úkraínu.Von der Leyen kveðst telja að lánið dugi til að mæta tveimur þriðju af því fjárhagslega svartholi sem blasir við Úkraínumönnum árið 2027. Forsetinn kveðst vonast til að fá aðra samherja Úkraínumanna til að útvega það sem vantar.Von der Leyen sagði lánveitinguna sýna óbilandi samstöðu Evrópu við Úkraínumenn. „Við stöndum með Úkraínu í stríði og friði,“ sagði hún. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna munu ræða málið í næstu viku og líklegt þykir að á brattann verði að sækja.Voldymyr Zelensky Úkraínuforseti sagðist