Telur of þungbært að birta dóm yfir manni sem sótti sér barnaníðsefni

Dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur telur að of þungbært yrði fyrir mann, sem í september var dæmdur fyrir vörslu barnaníðsefnis, að birta dóminn yfir honum. Maðurinn var handtekinn fyrir rúmu ári í umfangsmiklum aðgerðum Europol, í tengslum við eina stærstu barnaníðssíðu sem fundist hefur.Fjallað var um vefsíðuna í Kveik í síðustu viku. Hún hét Kidflix og hafði að geyma yfir 90 þúsund myndir og myndskeið með grófu kynferðisofbeldi gegn börnum. Síðan var byggð upp með hvatakerfi, þar sem notendur sem deildu nýjum myndum inn á síðuna fengu aðgang að frekara barnaníðsefni.Lögregluyfirvöld báru kennsl á 1.400 notendur síðunnar, þar á meðal tvo Íslendinga. Mál annars þeirra er enn til rannsóknar en hinn hlaut dóm í september. Dómstólum er skylt að birta dóma í sakamálum og er grunnreglan sú að
Telur of þungbært að birta dóm yfir manni sem sótti sér barnaníðsefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar