Langur fangelsisdómur fyrir að brugga Trump og fleirum banaráð

Asif Merchant, tæplega fimmtugur maður af pakistönskum ættum, hefur verið dæmdur til 27 og hálfs árs, 330 mánaða, fangavistar fyrir skipulagningu tilræðis við Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta stjórnmálamenn.Alríkisdómari í New York komst að þessari niðurstöðu í morgun. Saksóknarar höfðu krafist ævilangs fangelsis. Merchant var sakfelldur í mars fyrir skipulagningu hryðjuverkja að undirlagi erlends valds og fyrir að borga launmorðingjum fyrir framkvæmd morðanna.Vörn Merchant byggðist á því að Íranski byltingarvörðurinn hefði ógnað fjölskyldu hans í Íran tæki hann ekki þátt í að hefna dráps hershöfðingjans Qasem Soleimani árið 2020. Lögmenn Merchants hyggjast áfrýja dómnum.Alríkislögreglumenn sem þóttust ætla að taka að sér verkið hittu Merchant á bandarískum flugvelli í apríl 2024, sem
Langur fangelsisdómur fyrir að brugga Trump og fleirum banaráð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar