Andri Már Mortensen Birgisson, sem hlaut átta ára fangelsisdóm í Reykholtsmálinu, hefur áfrýjað dómi sínum til Landsréttar. Þetta staðfestir Þorgils Þorgilsson, verjandi hans.Andri Már fékk langþyngsta dóminn í málinu þar sem sex voru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán.Brotaþoli, sem er 61 árs gamall palestínskur maður með maltneskt ríkisfang, var sviptur frelsi sínu frá föstudeginum 19. apríl til mánudagsins 22. apríl árið 2024 á heimili sínu í Reykholti. Þar beittu sexmenningarnir hann ítrekuðu og margþættu ofbeldi og hótunum í því skyni að ná af honum fjármunum. TVEIR AÐRIR SAKBORNINGAR ÁFRÝJA Vísir greindi fyrst frá. Í þeirri frétt kemur fram að tveir aðrir sakborningar hafi áfrýjað sínum dómum. Það eru þeir Pétur Má