Enginn þyrlupallur við baðlón í Eyja- og Miklaholtshreppi

Fallið hefur verið frá áformum um þyrlupall og umfang bygginga minnkað í fyrirhuguðu hóteli og baðlóni Laxárbakka resort á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hótelbyggingin var jafnframt stytt, frístundahús færð á þurrari svæði og stígagerð lágmörkuð.Þetta kemur fram í umhverfismatsskýrslu sem nú er í kynningu. Á fyrri stigum skipulags gagnrýndi Náttúrufræðistofnun uppbygginguna þar sem þarna væri mikið samfellt og lítt raskað votlendi. Niðurstaða skýrslunnar er að áhrif á gróður og vistgerðir séu talsvert neikvæð. Samfélagslegu áhrifin yrðu jákvæð. Gert er ráð fyrir 300 starfsmönnum en 120 manns eru skráð til heimilis í sveitarfélaginu í dag.Laxárbakki er í Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi.Fréttagrafík / Jónmundur Gíslason
Enginn þyrlupallur við baðlón í Eyja- og Miklaholtshreppi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar