Ísraelsher hefur hafið nýja hernaðaraðgerð í miðhluta Gaza og hafa palestínskir íbúar flúið svæði í kringum Nuseirat-flóttamannabúðirnar. Að minnsta kosti þrír Palestínumenn hafa verið drepnir í aðgerðunum, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum. Ísraelskir skriðdrekar voru á ferð í dag nærri Salah al-Din-götu, austan við Nuseirat-flóttamannabúðirnar og norðan við Bureij-búðirnar. Á sama tíma heyrðist skothríð frá drónum og sprengjuárásir á svæðinu. Ísraelsher sagði að...