Þota Ryanair kyrrstæð á flugvelli. Mynd úr safni.EPA / STEPHANIE LECOCQHótun um sprengju í farþegaþotu rússneska flugfélagsins Azimuth Airlines reyndist vera gabb. Hótunin barst í morgun þegar þotan var á leið til borgarinnar Antalya í Tyrklandi þar sem loftslagsráðstefnan COP31 er haldin.Þotunni lenti heilu og höldnu og var færð á öryggissvæði á flugvellinum þar sem 65 farþegar og fjögurra manna áhöfn fóru frá borði. Tyrkneskar fréttaveitur segja að ekkert grunsamlegt hafi fundist við ítarlega leit. Snemma í nóvember var fjölda farþegaþotna lent í skyndingu vegna falskra sprengjuhótana víðs vegar um Evrópu.