Erlendur maður á þrítugsaldri er meðal sex sem grunuð eru um aðkomu að því að þvinga barn í hjónaband. Öll eru grunuð um mansal og eitt þeirra um kynferðisbrot. Fólkið er allt erlendir ríkisborgarar og frá sama landi.Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum. FORELDRAR STÚLKUNNAR MEÐAL HANDTEKINNA Málið er frá 2024. Í gær greindi fréttastofa frá því að fimm hefðu verið handtekin eftir að fullorðinn karl kom til landsins með 15 ára stúlku í nóvember 2024. Meðal þeirra handteknu voru maðurinn, faðir hans og foreldrar stúlkunnar.Stúlkan var falin barnavernd eftir að hún og maðurinn voru stöðvuð.Í skýrslum sem voru teknar af stúlkunni kom fram að foreldrar hennar hefðu gift hana manninum. Athöfnin fór fram erlendis.Stúlkan sagði brúðkaupið hafa